|
Dec 28, 2005
Ný síða Ég er komin með nýja síðu!! Endilega fariði þangað ef þið nennið.. :D og endilega setjiði nýja linka :D takk takk.. www.blog.central.is/danarun Dec 24, 2005
Gleðileg Jól!! Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk fyrir það gamla!! Vona að þið eigið eftir að eiga það æðislegt yfir hátíðirnar !! Kveðja Dana Rún. Dec 21, 2005
Fer ég í jólaköttinn?? Jæja þá er ég búin að fá einkunnirnar :) mér gekk mjög vel og ég náði öllu :D er ekkert smá sátt með það.... ætla samt að reyna að bæta mig enn meira í vor ;) Jólin eru að koma eftir 2 daga og ég er ekki enn búin að finna mér jóladressið!!! hvað á ég að gera? vera í gömlum fötum, finna mér bol við gamalt pils eða öfugt?? Ég er búin að fara útum allt... á laugaveginn, smáralind og í kringluna... þessi bær er greinilega ekki nógu stór fyrir mig... :/ verð að finna mér eitthvað, veit ekki afhverju en ég bara verð... :T Ég er farin að hlakka geðveikt mikið til jólanna! Hlakka svo til að fá matinn, opna pakka, hitta systur mínar og ættingja, og margt fleira... en jiii hvað á ég að gera sambandi við fötin?? ég er að fara að vinna allan daginn á morgun... einvherj til í smá verslunarleiðangur fyrir mig?? :D Maggi kom aðeins í bæinn í gær.. ótrúlega gaman að hitta hann.... en hann fór aftur í dag.. en hann ætlar að koma til mín á jóladag og koma í boðið hjá okkur :) skrýtið að það verði boð hjá okkur á jóladag.. venjulega er það alltaf einvhersstaðar úti.. hjá ömmu eða eitthvað álíka.. well er búin að bulla nóg í bili... bið að heilsa :) Dec 20, 2005
Einkunnir.. Jæja þá er ein lengsta helgi lífs míns búin.. var að vinna sem sagt alla helgina og það tók á skal ég segja ykkur... :D fólk er að tryllast einmitt núna útaf því að það var að fatta að jólin eru eftir 4 daga... afhverju byrjar fólk ekki fyrr? t.d. eins og kanski í byrjun desember.. þannig að þau geti a.m.k. tryggt sér stæði í kringlunni eða að fá ekki hjartaáfall í miðjum innkaupum? þetta er smá pæling sem ég hef verið að velta fyrir mér.. Þó að þessi langa helgi sé búin þýðir ekki að púlið sé á enda.. neibb, öll vikan er eftir.. fæ reyndar einn frídag þannig að ég get kanski klárað mitt jólastúss þá.. einmitt ég beið þangað til 2-3 dögum fyrir jól.. :D en allavega.. þá fer ég víst ekki í neina jólaklippingu.. er ekkert smá fúl yfir því :( las sko 3svar sinnum vitlaust á vaktaplanið mitt og var alltaf að panta klippingu á dögum sem ég er að vinna á.. sjokkerandi alveg.. þannig að ég fer þá bara í áramótaklippingu í staðinn :) er svosem alveg sama.. maður er hvorteðer bara heima hjá sér alveg að mygla á jólunum með konfekt og sjónvarp.. mmmmm.. Ég er að fara að ná í einkunnirnar mínar á eftir.. er dáldið stressuð.. :T ég ætti alveg að ná þessu.. en maður veit aldrei... Helgi er að fara í FÁ :) komst inn kallinn.. er ekkert smá ánægð fyrir hans hönd :) núna þarf hann ekki að fara í 2 strætóa á morgnana bara til að komast í skólann.. skil hann svosem alveg að hafa ekki nennt þangað..
Dec 14, 2005
Jólin að nálgast.. :D Ég er svo ánægð að á morgun verður þetta allt á enda.. ég er orðin svo þreytt á að læra að ég er eiginlega miður mín... er farin að sjá allt í móðu af þreytu... fór á kaffihús með steinunni og Eyrúnu í gær.. kom heim um 7 og svaf til 9 í morgun... þetta er ekki hægt... vantar svefn og geðheilsuna aftur.. er eiginlega orðin eins og gangandi vofa.. :S iss.. Ég er að fara til Evu á morgun.. við ætlum að elda eitthvað gott saman og fá okkur öl.. get ekki beðið eftir að fá mér fyrsta sopann :D mmmm :) ætla kanski að djamma á föstudaginn ef ég hef efni á því... langar það geðveikt en er að fara að vinna alla helgina.. nota bene 10 tíma á laugardaginn og 12 og hálfan tíma á sunnudaginn þannig að kanski maður taki bara svona virkradaga-fyllerý... fæ nú eitthvað smá frí í jólafríinu mínu.. eða skal ég segja um 3 daga samtals.. en ég er þó sátt að ég er ekki að vinna á aðfangadag og gamlársdag... Er að pæla að djamma kanski ekki á gamlárskvöld.. fer eftir því hvað verður að gerast.. ef mér verður boðið í eitthvað crazy ass partý þá náttúrulega djamma ég.. eins og í fyrra.. bara gaman hjá Dabba :) en annars ætla ég að djamma á nýársdag.. er að fara í svaka partý þá :) vill ekki eyðileggja það með þynnku.. :Den við Maggi og Guðrún vorum kanski að spá að halda teiti hjá þeim ef þau nenna í bæinn það kvöld.. en allt kemur i ljós.. Mér finnst svo stutt síðan síðustu jól voru.. án gríns þá man ég enn hvað ég fékk frá hverjum og allt það... svo stutt síðan en samt svo langt.. :D Það verður örugglega ekkert spilakvöld hjá mér um jólin... eða þið vitið, svona formlegt.. það mega auðvitað allir koma og spila með mér.. svo gaman :D Hey.. eitt.. þetta er bara fyndið og skemmtileg afþreying... Hér Dec 11, 2005
Mr. Flash? You are The Flash
Dec 8, 2005
Ég skal segja þér sitthvað um þig :) Ég fékk áskorun frá Írisi að setja þetta á bloggið mitt.. Comentaðu nafninu þínu og.. 1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig 2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig 3.Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér 4. Ég segi þér skemmtilegustu minninguna tengda þér 5. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig 6. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt! Dec 6, 2005
Próf Ég tók fyrsta prófið mitt í dag.. gekk alveg ágætlega en samt eins og flestir sem kannast við mig sem spurja mig um prófin þá þori ég aldrei að segja hvenig mér gekk... er svo hrædd um að ef ég segji eitthvað gott þá verð ég fyrir svo miklum vonbrygðum ef ég næ ekki prófinu eða fæ ekki nógu gott... en svona er ég áttúrulega bara spes... Við Sif og eyrún erum allavega búnar að sitja sveittar uppá bókhlöðu alla helgina og erum búnar að vera ofboðslega duglegar að læra ;) Mig er virkilega farið að langa á djammið.... fór á föstudaginn til Svövu í partý, ekkert smá gaman, hef aldrei skemmt mér svona vel edrú :D fórum í þennan svaka skemmtilega partýleik sem er eiginlega meira actionary.. en virkar vel.. :D helling af bjór þar og auðvitað varð ég að vera edrú... á laugardagskvöldinu fór ég til Guðrúnar, hún var með smá jólaglögg... helling af víni þar.. ég var edrú.. jább svona er maður nú heppin.. og alltaf gerist það þegar maður er í prófum... glætan að svona gerist fyrir mig almennt.. bara á föstudagskvöldi í október... neibbb bara í prófunum.. þá eru náttla allar vinnur að fara á hlaðborð og meira fyllerý þar og allt þannig.. nema við hin sem nennum að hanga í skóla.. :P iss.. Mér var boðið á jólahlaðborð hjá Bakaríinu á laugardaginn næsta.. langar geðveikt mikið að fara og kveðja stelpurnar sem ég var að vinna með (er sko hætt þarna) ... svo er annað sem mig langar líka geðveikt að fara á.. Eyrún er með danssýningu sama kvöld.. þannig að núna er bara að velja og hafna.. veit ekki hvað ég geri.. :P Er að pæla að halda spilakvöld um jólin... spil og brennivín? hver er til? Dec 1, 2005
Svava er systir mín. ![]() Svava er manneskja sem ég hef alltaf litið mikið upp til. Þegar ég var lítil var Svava stóra systir mín í Reykjavík sem ég gat aldrei beðið eftir að fá í heimsókn. Svava er ein af mínum bestu vinkonum og ég get sagt henni allt. Ég er svo ánægð með að eiga hana akkúrat fyrir systur. Fjölskyldan mín gerir mig að þeirri manneskju sem ég er og er ég mjög sátt með það. Í dag á Svava afmæli og ég óska henni til hamingju með daginn og vona að hún eigi æðislegan dag :) - elska þig sætust :* Ég er orðin svo spennt... 7 janúar verða tónleikar í laugardalshöll. Þeir eru til styrkar náttúruauðlindum íslands.. ok... ég er nú reyndar ekki á móti kárahnjúkum.. en ég ætla samt að fara.. er búin að bíða í ára öld að sjá Björk á sviði.. get ekki beiðið að sjá hana og Damian Rice og alla þá frábæru tónlistarmenn sem verða að spila þarna.. ;) ætla fleiri að fara?? Nov 27, 2005
kuldumbull Núna er heil viki liðin frá því að ég fór á White Stripes og mér finnst eins og það hafi verið í gær... án gríns þá er tíminn að fljúga úr höndunum á mér..? þetta gerist aldrei nema í nóveber-desember og einnig í apríl-maí..... þá byrja prófin... prófin hjá mér byrja eftir rúma viku..ég vildi eignlega bara vera búin að taka þau... það er svo mikið að læra fyrir þessu blessuðu próf að ég gæti ælt!! Anywho... ég var bara róleg þessa helgina.. svona álíka eins og allar helgar í þessum mánuði liggur við.. iss... ég nenni ekki að druslast úti í þessum kulda og enda svo á bömmer útaf því að vera að deyja úr kulda og komast ekki inn útaf endalausum röðum... vill miklu frekar vera eitthvað inni að dúllast.. afhvjeru er ekki lengur hægt að djamma án þess að fara niður í bæ.. ég gæti það alveg.. en sumt fólk nennir ekki að hanga bara í partýi og djammað þar... æjh veit ekki.. miklar pælingar í hausnum á mér þessa dagana.. En eigum við aðeins að tala um sjónvarp? Það er byrjað.. eða svoldið síðan byrjaði sjónvarpið að sýna íslenskan þátt sem heitir Kalla- Kaffi..... guð minn góður!?!?! hefur einhver list á að horfa á svona? finnst einvherjum þetta skemmtilegt? allavega þeir sem ég hef talað við finnst þetta óbjóður!! sammála! það eru bannaðir hinir og þessir þættir en ekki kalla-kaffi! jábbs.. mér finnst í raun að þetta ætti að vera bannað með lögum....
|
Profile
Dana MSN:skrugga600@hotmail.com Tag Board Calendar
Links online AÐRIR BLOGGARAR Arna bloggar frá London Arna Þorleifs Aðalheiður Bindindismenn Bjarni Brynja og Dagný Eitrunettar Eyrún í Texas Gulla Gönni Bardagafiskur Halli Harpa Keli Íris Pæjusystir Íris og Sjöbba Júlía Kristján Lúcía Nína Ragga Ragnhildur Sara og CO Sif Steinunn Sunna Svava Gellusystir Todstone-stelpur Trunturnar 3 Unnur Jóna Viktoría 2 pungsveittir LITLIR BLOGGARAR Guðmundur Ómar Eyþór Björn ÝMISLEGT Beljan B2.is Konur og afbrot Leikir :) Hreyfimyndir Rokk.is Frítt að senda SMS Myndasíða Írisar Viðeyjarmyndbandið Gestabókin mín Myndirnar mínar Myndirnar mínar 2 Contact Me | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||